stjarna.bloggar.is
Er að færa bloggið mitt yfir á nýja síðu, því ég ætla að röfla um meira en sjálfa mig og fjölskylduna. Þar er mikill vettvangur fjöryrkjanna og ég vil vera með. Verð framvegis á www.arnastjarna.blog.is Sjáumst þar!
Arna Möller Steindórsdóttir
Síðustu dagar hafa verið ofsalega góðir. Það snjóaði nú hressilega eins og allir tóku eftir. Litlu dúllurnar mínar voru svo glöð þegar snjórinn kom, þau ruku út í þennan dásamlega hvíta heim, með snjóþotur í eftirdragi. Voru svo í garðinum að bragða á þessari fádæma góðu afurð sem himininn sendi. Alveg yndislegt að fylgjast með þeim. Auðvitað þurfti að búa til engla í snjóinn, en hann Björn minn gerði sko bara strákaengla! Það er semsagt gert með því að hafa lappirnar bara saman og eingöngu hreyfa hendurnar fyrir vængina. Strákenglar eru nefnilega ekkert í kjól!!! Ég hélt ég myndi pissa í mig! Svo eftir einhverja stund þegar ég hafði ekki séð þau, fór ég að kíkja eftir þeim, en þá fann ég Björn liggjandi á gangstéttinni og var ekkert á því að fara þaðan. Ég bað hann um að standa upp svo að fólk gæti nú gengið um og þyrfti ekki að labba yfir hann, þá sagðist hann nú bara vera að skoða skýin og gæti ekkert staðið upp strax.... Hann er algjört æði þessi drengur.
Svo kom Lilja Rós til okkar ásamt Sveini og Sævari. Þeir voru með snjóþotur og drógu tvíburana hringinn í kringum húsið, aftur og aftur, við mikil hlátrasköll. Síðan ákváðum við að taka okkur göngutúr út í bakarí. Þá fengu strákarnir hennar Lilju þessa fínu hugmynd, að allir yrðu í halarófu, þ.e. að fremsti héldi í bandið á næstu snóþotu, sá í þá næstu og koll af kolli.....fjórar þotur í einni runu og Lilja var lestarstjóri. Þetta gekk fyrstu tvo sentimetrana, en svo missti einhver bandið og einn valt og svona. Við ákváðum því að það væri betra að við mömmurnar drægjum bara börnin okkar, hvor fyrir sig. Það gekk ótrúlega vel bara. En stóru strákarnir vildu svo ólmir fá að draga krílin og gerðu það með frábærum töktum. Mikið ofsalega var gaman!
Það var líka svo frábært að koma svo í bakaríið, fá sér heitt kakó og með því. Mmmmmmmmmmm.
Björn sofnaði að sjálfsögðu í bakaríinu.....en ekki hvað.....hann liðaðist út af við afgreiðsluborðið. Hann sofnar bara þegar svefninn kallar. Algjör bangsi.
Mamma kom til okkar á í vikunni og hjálpaði sko heldur betur til á heimilinu. Ég hafði beðið hana að aðstoða mig við að koma barnaherberginu í stand. Hún er svo ofsalega góð í að skipuleggja og sjá út praktísku hlutina. Við settum saman rúm tvíburanna og nú eru komar kojur. Gólfrýmið er miklu stærra. Fyrir utan hvað við tókum og hentum endalaust miklu dóti sem aldrei er notað. Ekki NEMA 5 kassar!!! Fyrir utan það sem fór í svartan ruslapoka. DJÍÍÍ! Svo fór mamma í gegnum eldhúsið. Hún er eins og stórkostlegur AJAX brúsi, sem fer inn í eldhúsið, grátt og stútfullt af kössum og hreinsar allt, kemur gljái á allt og allt er skipulagt og vel frágengið. Þetta er ótrúlegt!!!!! Hún er alveg mögnuð þessi kona. Tvíburarnir voru svo hamingjusamir að hafa ömmu sína hjá sér. Hún er svo skemmtileg og svolítið mikið að dekra líka, já já. Ef Fríða vill bleikt, þá er það bara BLEIKT og ekkert með það. Þá gefur amma BLEIKT. Við erum sem sé að tala um sokkabuxur sem voru keyptar bláar.....og var breytt í bleikar á mettíma innan Hveragerðis. Ekki orð um það meir. Amma kom líka færandi hendi með bílateppi á gólfið í herberginu og færði þeim nýja svo nýja vetrargalla. Þau eru svo dekruð af ömmu sinni! En guð hvað ég er þakklát fyrir það!!!
Svo í nótt lenti stóri maðurinn. Doddi kom heim rétt um kl. 2 í nótt. Ofsalega var gott að fá hann heim. Það var svo skrítið að hann væri ekki heima. Hann er vanur að fara með Björn og Fríðu á leikskólann á morgnana. Sumt er bara einhvernveginn eins og það er og svo þegar það er ekki lengur, verður það svo skrítið. Mikið óskaplega var gott að hann lægi í rúminu við hliðina á mér!
Og núna er hann að leika við krakkana. Hann keypti á Spáni Spiderman karl handa Birni og Hafmeyju barbídúkku handa Fríðu. Jeminn hvað það er gaman núna.
Aron fær svo sitt þegar hann kemur til okkar um helgina.
Nú er það orð dagsins: "Slakaðu á og njóttu lífsins. Þú munt aldrei lifa þennan dag aftur."
Höfum það í huga :)

Svo kom Lilja Rós til okkar ásamt Sveini og Sævari. Þeir voru með snjóþotur og drógu tvíburana hringinn í kringum húsið, aftur og aftur, við mikil hlátrasköll. Síðan ákváðum við að taka okkur göngutúr út í bakarí. Þá fengu str%2

Grasekkjan égArna Möller Steindórsdóttir
Í morgun fór Doddi ásamt pabba sínum til Keflavíkur. Þeir eru á leiðinni til Spánar! Þar ætlar tengdó að skoða hús með það í huga að mögulega kaupa eitt slíkt. Doddi var fenginn til að fara með til þess að skoða byggingargerð hússins og leita að mögulegum göllum. Þetta er búið að liggja í loftinu frá því í ágúst en í gær var allt í einu ákveðið að stökkva af stað í dag. Við börnin erum því ein í kotinu og ætlum að láta fara vel um okkur. Ég er búin að vera að vinna upp fyrri deyfð gagnvart þvottum og er á skrilljón að þvo og taka til. Mikið svakalega er gaman að gera fínt hjá sér. Svo er bara að sjá hvernig orkustadusinn verður seinna í dag. Það er alltaf alveg gefið að ef ég fæ svona kast í tiltekt, þá kostar það rúmlegu á eftir. Ég þarf bara að nýta alla þá orku sem kemur til mín þegar hún kemur. Og nú er orkutími. Fer bara snemma í háttinn í kvöld. Svo er sunnudagaskóli á morgun svo það er eins gott að vera í formi.
Annars erum við Lilja Rós að fara af stað í leikfimi. Báðar öryrkjar og förum þetta á okkar hraða. Alveg frábært að hafa æfingafélaga sem er á sama tempói!!
Villi og Heiða eru að flytja til Hveragerðis í dag. Við kíktum til þeirra í gær, en þau fengu húsið afhent þá. Mikið ofboðslega er þetta fallegt hjá þeim. Þau eru í endaraðhúsi og lofthæðin er geggjuð. Svo er æðislegur sólskáli sem er í raun beintengdur við stofuna. Þau eru með heitan pott á veröndinni, svo þau verða líklega lögð í einelti, a.m.k. af honum Dodda. Hann hefur átt fasta viðveru hjá Þóru og Dóra um helgar í pottinum hjá þeim. Doddi er algjör pottormur!!!
Annars gengur allt voða mjúklega og við erum sátt og sæl í Lyngheiðinni.
Heilræði dagsins, 27. október, er: "Snúðu andliti þínu í birtuna og myrkrið mun aldrei ná að umlykja þig"
Ég ætla að láta þetta vera fylgjuna mína í dag, vonandi þú líka :)
Í dag mun Míla okkar fara í sveitina. Hún hefur verið verulega agressív og glefsað og bitið bæði börn og fullorðna. Eins og hún er falleg, er hún jafn erfið. Hún hefur samt líka verið góð, en blíða er ekki til í hennar orðabók.
Við fengum Mílu gefins þar sem hún er blendingur. Mamma hennar er hreinræktuð Basenji og pabbi hennar Border Collie/Labrador. Hún hefur fengið frekar mikið í arf frá móður sinni. Basenji eru ekki mjög barnvænir hundar , eða svo segir í lýsingu á þeim. Enda hefur komið á daginn að börn mega varla hreyfa sig í kringum hana, þá er hún komin með kjaftinn í hendur, fætur og andlit.
Ég hafði alltaf haft þá barnslegu trú að allir hundar væru góðir, enda aldrei kynnst svona geðslagi í hundi. Það voru margir búnir að segja okkur að láta hana fara, en ég einhvern veginn gat ekki hugsað mér það. Ekki fyrr en ég ráðfærði mig við hundaþjálfarann hennar og konu hjá Dýralæknaþjónustunni. Þær voru á sama máli að þetta væri það eina í stöðunni. Að ef hún væri byrjuð á þessu núna, myndi það eingöngu versna.
Tvíburarnir kvöddu hana í morgun og voru sátt við að hún gæti þá bara farið að bíta í gras í sveitinni!!
Ég setti inn eina mynd af Mílu. Hún er óendanlega falleg, en fegurðin er víst ekki allt....
Kobbi bangsiArna Möller Steindórsdóttir
Á föstudaginn kom Fríða Dís heim af Óskalandi með vin sinn, Kobba bangsa. Kobbi á heima á leikskólanum en þykir óskaplega gaman að fá að fara hverja helgi í heimsókn til einhvers af deildinni. Hann dregur nafn upp úr dalli hvern föstudag og nú síðast dró hann nafn Fríðu. Þar með átti Fríða að vera vinkona hans um helgina og hafa hann með sér hvert fótspor.
Þetta er skemmtileg tilbreyting og frábært að fá svona sætan og mjúkan krúttubangsa til að sýna á sér allar bestu hliðarnar eina helgi.
Það varð reyndar smá uppistand á laugardagsmorgun, þegar Fríða og Björn vöknuðu kl. 6, en þá kom í ljós að Kobbi lá ekki í rúminu hjá Fríðu. Það var vegna þess að Björn hafði nappað honum einhverntíma um nóttina og kúrt með hann. Já, það var stundum slegist um litla mjúkdýrið.... Kobbi tók þátt í heilmörgu, fékk að sjá hvernig maður situr fallega við borð, fór í fótbolta með krökkunum hérna inni og var dómari. Aron tók fullan þátt í þessu Kobba ævintýri. Hann var alveg frábær með krökkunum. Svo fékk Kobbi að fara með í sunnudagaskólann og var afar hamingjusamur með það!
Með Kobba fylgdi bók sem maður átti að skrifa í um það sem gert var um helgina. Við tókum líka myndir af öllu saman og límdum inn í bókina. Svo er bókin og Kobbi saman í bakpoka sem börnin skrattast með um allt. Í dag verður svo stund á leikskólanum þar sem lesið er upp úr bókinni það sem Kobbi gerði þessa helgina. Virkilega sniðugt og jákvætt.
Þetta var dásamlega skemmtileg helgi og við þökkum Kobba bangsa fyrir samveruna :)
Tók loksins í hnakkadrambið á sjálfri mér og bætti við myndum í Spánarferðarmyndaalbúmið. Já fínt já sæll já fínt já sæll já FÍNT já SÆLL!
Ef ég ætti ekki að vera orðin stórkostlega útlítandi, þá veit ég ekki hvað. Vá, ég er næstum búin að vera sofandi alla vikuna. Hvað er málið? Er þetta veðrið? Er þetta mataræðið? Hvað er að?
Ég hef rétt staulast fram úr til að hjálpa til við að koma los tvíbbós út úr húsi á morgnana. Doddi hefur alveg séð um að koma þeim á leikskólann og líka að sækja þau. Ég er búin að vera "out of order". Það er varla að ég sé vakandi um kvöldmatarleytið. Hef sem sé vaknað milli 7 og hálf 8, klætt og greitt og kysst og knúsað krílin...sagt: "eigið góðan dag elskurnar!".....fer svo upp í rúm og bomms...vakna næst milli 13 og 14. Er svo farin að geispa um 6- leytið (18 jú nó), hef farið á námskeið frá 19-21, komið heim, Doddi búinn að koma börnunum í ból og ég leggst í sófann. Er svo sofnuð aftur allt frá kl. 23 til 01. Þetta er náttúrulega óhóf af svefni. Mér telst til að ég hafi verið sofandi í 12-14 tíma á sólarhring.
Einhverjar tillögur um hvernig maður losnar úr svona fegurðarkrísu?